Þegar vinir kaupa saman íbúð
Grein

Þegar vinir kaupa saman íbúð

Embla Rún Hall­dórs­dóttir keypti í vetur íbúð með einum vini sínum. Það er frá­brugðið því að kaupa íbúð með maka sínum og vita þau til dæmis að þau munu einn dag­inn selja. Það komu upp vanda­mál með lánin vegna fryst­ingar líf­eyr­is­sjóðs og svo kom leki í ljós en í dag líður þeim vel í fal­legu íbúð­inni sinni. Þau eru með svip­aðan smekk og lögðu þau áherslu á hús­gögn úr dökkum við og skreyta heim­ilið meðal ann­ars tarot­spil og haus­kúpur.
Fleiri munu leita eftir sjónrænum þáttum en fullkomnun
Grein

Fleiri munu leita eftir sjón­rænum þáttum en full­komnun

Rannveig Þóra Karls­dóttir er nemi í graf­ískri hönnun við Lista­há­skóla Íslands og útskrif­ast í vor. Rannveig telur að á árinu 2026 verði breyt­inga að vænta. Óhefð­bundnar lita­sam­setn­ingar verði áber­andi og að hand­bragð og ófull­komnun verði meira áber­andi en áður. Hönnun verði „mann­legri“ sem geti skapað per­sónu­legri teng­ingu. Hún sér gervi­greind sem tæki til að stytta vinnu­ferla en leggur áherslu á að inn­sæi og hug­myndir hönn­uða skipti enn mestu máli og að fleiri leiti að sjón­rænum þáttum sem vegi á móti staf­rænum nýj­ungum og full­komnun.
Handhægir, hollir, góðir og ódýrir réttir
Grein

Hand­hægir, hollir, góðir og ódýrir réttir

Hér koma þrjár upp­skriftir að hand­hægum, hollum og góðum réttum sem eru líka góðir fyrir budd­una. Auðvelt er að gera þessa rétti og þó að hrá­efn­islit­inn sé nokkuð langur í kjúklinga­rétt­inum þá er nokkuð víst að flestir eiga til kryddið og fleira sem fer í hann. Svo er engin skylda að hafa allt með og það má líka breyta, t.d. past­anu eða græn­met­inu í fisk­rétt­inum.
Frelsið er í sveitinni
Grein

Frelsið er í sveit­inni

Þóra Kristín hefur vakið athygli á sam­fé­lags­miðlum síð­ast­liðið ár. Hún deilir þar mynd­böndum af hvers­dags­lífi sínu í sveit í Skaga­firði. Þóra ákvað að flytja út í sveit þegar hún varð ólétt að sínu fyrsta barni og segir mikið frelsi fylgja því að ala barn upp í sveit. Þóra stendur einnig fyrir svoköll­uðum sál­ar­hringjum. Það eru sam­veru­stundir sem ætlað er að auka vellíðan hjá þátt­tak­endum með hug­leiðslu og slökun.
Það er margt í dag til að vera þakklátur fyrir
Grein

Það er margt í dag til að vera þakk­látur fyrir

Draumey Ara­dóttir, kenn­ari og skáld, fór í sveit á hverju sumri frá því hún var barn og vel fram á ung­lingsár. Hún var hjá afa sínum og ömmu á Hnjóti á sunn­an­verðum Vest­fjörðum en þar hefur verið til margra ára þekkt byggða­safn. Draumey á merki­lega hluti eftir ömmu sína sem eru lýsandi fyrir lífið áður fyrr og segir hún ver­una í sveit­inni hafa haft mikil áhrif á við­horf sitt og þakk­læti til lífs­ins.
„Vinir koma hvaðanæva af höfuðborgarsvæðinu til þess að fara í smá hænsnaþerapíu“
Grein

„Vinir koma hvaðanæva af höf­uð­borg­ar­svæð­inu til þess að fara í smá hænsna­þerapíu“

Hænsna­hald fer ekki bara fram í sveit eða á stórum hænsna­búum heldur hefur það færst í auk­ana á síð­ustu árum að halda hænur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sigrún Skafta­dóttir og fjöl­skylda hennar eru búsett í Kópavogi og njóta þess að fá egg beint úr garð­inum sínum. Hún segir hænsna­hald vera heilandi og hafa fleiri kosti en galla í för með sér.

Mest lesið undanfarið ár