„Á meðan maður hefur ástríðuna þá heldur maður áfram“

Heim­il­is­blaðið sett­ist niður með Kjartani Páli Eyj­ólfs­syni, fram­kvæmda­stjóra Epal, sem hefur ein­sett sér að halda hug­sjón föður síns á lofti. Fyr­ir­tækið fagnar 50 ára afmæli í ár og leggur enn áherslu á sömu grunn­gildi og við stofnun þess, að bjóða upp á sígildar vörur sem end­ast.

„Á meðan maður hefur ástríðuna þá heldur maður áfram“
Kjartan Páll Eyj­ólfs­son Fram­kvæmda­stjóri Epal segir Epal starfa eftir sömu gildum og fyrir 50 árum síðan. Markmið fyr­ir­tæk­is­ins er að selja lífseigar og klass­ískar vörur sem end­ast. Hjá Epal er mikið lagt upp úr því að styðja við upp­gang íslenskrar hönn­unar. Mynd: Golli

Kjartan Páll Eyj­ólfs­son, fram­kvæmda­stjóri Epal, situr í brún­leitum sófa í Epal, Skeif­unni og segir blaða­manni frá stofnun fyr­ir­tæk­is­ins árið 1975. Faðir hans, Eyjólfur Pálsson, lærði hús­gagna­arki­tektúr í Kaup­manna­höfn og fannst vanta góða og vand­aða hönn­un­ar­vöru á íslenskan markað þegar hann flutti heim. Til að byrja með gekk Eyjólfur á milli arki­tekta með sýn­is­horn af glugga­tjöldum og hús­gagna­á­klæði í ferða­tösku og seldi fyrstu vör­urnar þannig. Samhliða því vann hann á teikni­stofu. Tveimur árum síðar, árið 1977, var fyrsta Epal-versl­unin opnuð. „Þannig byrj­aði þetta,“ segir Kjartan. „Þetta hefur alltaf verið hug­sjón hjá föður mínum.“

Lífseigar og sígildar vörur

Sjálfur tók Kjartan við hlut­verki fram­kvæmda­stjóra af föður sínum fyrir 17 árum síðan. Þá hafði hann menntað sig í mark­aðs­fræði og sinnt öðrum störfum í milli­tíð­inni, þar á meðal verið fram­kvæmda­stjóri Ölgerð­ar­innar um tíma. Kjartan segir mark­mið Epal enn vera það sama og fyrir 50 árum síðan, að selja vand­aðar gæða­hönn­un­ar­vörur sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár