Fleiri munu leita eftir sjónrænum þáttum en fullkomnun

Rannveig Þóra Karls­dóttir er nemi í graf­ískri hönnun við Lista­há­skóla Íslands og útskrif­ast í vor. Rannveig telur að á árinu 2026 verði breyt­inga að vænta. Óhefð­bundnar lita­sam­setn­ingar verði áber­andi og að hand­bragð og ófull­komnun verði meira áber­andi en áður. Hönnun verði „mann­legri“ sem geti skapað per­sónu­legri teng­ingu. Hún sér gervi­greind sem tæki til að stytta vinnu­ferla en leggur áherslu á að inn­sæi og hug­myndir hönn­uða skipti enn mestu máli og að fleiri leiti að sjón­rænum þáttum sem vegi á móti staf­rænum nýj­ungum og full­komnun.

Fleiri munu leita eftir sjónrænum þáttum en fullkomnun
Rannveig Þóra.

Hver er þín menntun og í graf­ískri hönnun?

Ég er 21 árs nemi í graf­ískri hönnun við Lista­há­skóla Íslands. Ég hóf nám þar árið 2023 og fór síðar í skipti­nám til Kaup­manna­hafnar við The Royal Danish Academy og útskrif­ast núna í vor.

Hvaða lita­notkun telur þú verða ráð­andi fyrir árið 2026?

Ég held að óhefð­bundnar lita­sam­setn­ingar, nátt­úru­litir og neon­litir verði ráð­andi fyrir árið. Það sem heillar mig mest er þegar fólk þorir að leita út fyrir boxið með óvæntu lita­vali og djörfum lita­sam­setn­ingum.

Hvaða trend heillar þig per­sónu­lega mest fyrir árið 2026?

Það sem heillar mig mest fyrir árið er sú þróun að hönnun verði „mann­legri“. Fleiri og fleiri leita að sjón­rænum þáttum sem vega upp á móti enda­lausum staf­rænum nýj­ungum og full­komnun. Ófull­komnun og hand­bragð fær meira rými, í mót­vægi við hraða og fjölda­fram­leiðslu staf­ræns efnis.

Hvernig hefur gervi­greind breytt vinnu­ferli graf­ískra hönn­uða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár