Mynd: Golli

Skemmtilegast að setjast niður með góðu fólki og borða

Hildigunnur Ein­ars­dóttir söng­kona er mik­ill mat­gæð­ingur og hefur gaman af að dunda sér í eld­hús­inu við að búa til góðan mat. Hún seg­ist lítið fara eftir upp­skriftum en í stað þess opnar hún ísskáp­inn, kíkir í skápa og athugar hvað hún á til og þannig verða margir réttir hennar til. Hún segir að það komi með móð­ur­mjólk­inni að elda upp úr sér og seg­ist elska ítalskan mat og notar gjarnan ítalskt krydd til að fá það besta í mat­inn.

Hildigunnur seg­ist njóta þess að dúlla sér í eld­hús­inu, þegar hún hefur tíma en hún les mikið upp­skriftir og kaupir upp­skrift­ar­blöð og fær þannig hug­myndir. Hún blandar líka saman upp­skriftum eftir sínu hug­ar­flugi og gerir að sínu en fyrst og fremst vill hún geta nýtt það sem til er. Hún segir það skipta máli að nota góð krydd en hún passar upp á að alltaf sé til græn­meti, tómatar í dós fyrir grunn­inn og svo eitt­hvað sem gefur matnum extra bragð eins og ólífur og kapers.

„Ég er svo­lítið lík móður minni að ég er betri í að gera rétti upp úr mér en að elda eftir upp­skriftum og finnst mjög gaman að elda úr því sem er til og ég finn í ísskápnum. Sumum finnst þetta alveg óskilj­an­legt,“ segir Hildigunnur og hlær „en ég á mjög auð­velt með þetta. Ég vann með­fram söngnum í fjögur ár sem hádeg­is­verð­ar­kokkur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár