Þegar vinir kaupa saman íbúð

Embla Rún Hall­dórs­dóttir keypti í vetur íbúð með einum vini sínum. Það er frá­brugðið því að kaupa íbúð með maka sínum og vita þau til dæmis að þau munu einn dag­inn selja. Það komu upp vanda­mál með lánin vegna fryst­ingar líf­eyr­is­sjóðs og svo kom leki í ljós en í dag líður þeim vel í fal­legu íbúð­inni sinni. Þau eru með svip­aðan smekk og lögðu þau áherslu á hús­gögn úr dökkum við og skreyta heim­ilið meðal ann­ars tarot­spil og haus­kúpur.

Þegar vinir kaupa saman íbúð
Vinirnir Embla og Arn­laugur keyptu saman íbúð. Mynd: Golli

Embla Rún Hall­dórs­dóttir er í stórum vina­hópi og segir hún að þau hafi lengi verið að grín­ast með að þau ættu öll að setja í púkk og stofna litla komm­únu. „Það er ómögu­legt að kaupa einn í dag,“ segir hún. „Ég gerði mér grein fyrir í haust að ég og vinur minn, Arn­laugur, vorum kannski ekki jafn­mikið að grín­ast og hinir.“ Hún spurði hann hvort þau tvö ættu að kaupa saman íbúð og búa þar saman og hann sló til. „Ég hafði fengið arf en ég vissi að ég væri ekki með nægi­leg laun en ég er kaffi­bar­þjónn og hefði lík­lega ekki náð greiðslu­mati ein. Hann er bók­ari og var með sparnað. Þannig að við tvö vorum góð til þess að ná greiðslu­mati og kaupa íbúð.“

Þau sett­ust niður og skoð­uðu hvort fjár­málin þeirra myndu passa til þess að kaupa íbúð saman, eins og hún orðar það. Síðan gerðu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár