Gunnar Sveinbjörnsson, fyrrverandi bóndi, stendur í gróðurhúsinu sínu á góðviðrisdegi og týnir þjófa af tómatplöntu. Hann fékk sér gróðurhúsið fyrir þremur árum og nýtur þess mjög að rækta. Synir Gunnars settu gróðurhúsið upp fyrir föður sinn en það er sérstyrkt fyrir íslenska veðráttu. Í gróðurhúsi Gunnars eru alls kyns plöntur, þar á meðal gúrkur, tómatar og paprikur.

Mikill vöxtur
Það er Gunnari eðlislægt að rækta og huga að plöntum. „Ég var ellefu ára þegar ég ákvað að vera bóndi og hef óskaplega gaman af því að rækta,“ segir Gunnar. Hann nýtir veraldarvefinn gjarnan til að fræðast meira um fræ og sanka að sér hagnýtum upplýsingum.

Gunnar býr á Hvolsvelli og segir viðra vel til ræktunar í gróðurhúsum …












Athugasemdir