Hvítmálað hús í póstnúmeri 105 í Reykjavík. Þrjár íbúðir eru í húsinu og býr Áslaug í íbúðinni á efstu hæðunum tveimur ásamt eiginmanni sínum, Sacha Tueni og syni þeirra, Ocean þegar hún er í Reykjavík. Hvítmálaðir veggir og listaverk eftir bandaríska arkitektinn, listamanninn og skartgripahönnuðinn John Brevard skreytir vegginn upp stigann. Ævintýraleg fegurð.
Við Áslaug setjumst inn í eldhús þar sem hvíti liturinn er allsráðandi. Stórt málverk skartar bæði hvítum og svörtum lit.
Áslaug, sem búsett var í Kaliforníu frá fimm til ellefu ára aldurs, er lögfræðingur frá Háskóla Íslands auk þess að hafa lokið meistaranámi í lögfræði frá Duke og MBA-námi frá Harvard-háskóla. Eftir útskrift fór hún að vinna hjá McKinsey í London sem þýddi að hún ferðaðist víða um heim. Hún hóf síðar störf hjá Baugi í London og átti þátt í miklum uppgangi fyrirtækisins og á þeim tíma byrjaði hún að tengjast tískuheiminum og fjárfesta …











Athugasemdir