„Vinir koma hvaðanæva af höfuðborgarsvæðinu til þess að fara í smá hænsnaþerapíu“

Hænsna­hald fer ekki bara fram í sveit eða á stórum hænsna­búum heldur hefur það færst í auk­ana á síð­ustu árum að halda hænur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sigrún Skafta­dóttir og fjöl­skylda hennar eru búsett í Kópavogi og njóta þess að fá egg beint úr garð­inum sínum. Hún segir hænsna­hald vera heilandi og hafa fleiri kosti en galla í för með sér.

„Vinir koma hvaðanæva af höfuðborgarsvæðinu til þess að fara í smá hænsnaþerapíu“
Bóndi Sigrún Skafta­dóttir bjó áður í miðbæ Reykja­víkur en er nú hænsna­bóndi í Kópavogi Mynd: Golli

Árið 2024 ákváðu tvær fjöl­skyldur í par­húsi á Kársnesi í Kópavogi að taka sig saman og byggja hænsna­kofa og ger­ast hænsna­bændur mið­svæðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Önnur fjöl­skyldan er nú flutt til Ítalíu, en fjöl­skylda Sigrúnar Skafta­dóttur er enn á svæð­inu ásamt hæn­unum Gullbrá, Hlýju, Snjó­laugu, Línu og Sól, hund­inum Röskvu og kett­inum Pöndu. Sigrún, sem er nýbúin að selja bróður sínum rekstur veit­inga­stað­ar­ins Krónikunnar í Gerð­ar­safni, er plötu­snúður, móðir og dýra­vinur sem stefnir á háskóla­nám í haust.

Sveitastemning í borg

Sigrún og fjöl­skylda hennar bjuggu áður í miðbæ Reykja­víkur og eftir að þau fluttu í Kópa­vog­inn sáu þau hjónin strax fyrir sér að hægt væri að nýta garð­inn í meira en ræktun á plöntum. Garð­ur­inn er flenni­stór, bæði fyrir framan og aftan við húsið. „Við mað­ur­inn minn, Axel Aage Schiöth, erum algjört dýra­fólk í grunn­inn. Þegar við fluttum hingað hugs­uðum við að þessi lóð væri full­komin fyrir hænur. Svo …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár