Reglufesta skiptir mestu máli fyrir heilbrigði

Björn Þór Sig­ur­björns­son einka- og styrkt­ar­þjálf­ari segir að fjórar grunn­stoðir heil­brigðs lífs­stíls séu nær­ing, svefn, hreyf­ing og streitu­stjórnun og að góð orka og lík­am­legur árangur æfinga, standi og falli með þessum fjórum stoðum.

Reglufesta skiptir mestu máli fyrir heilbrigði
Reyndur þjálf­ari Björn Þórhefur góða þekk­ingu á líf­eðl­is­fræði, hreyfi­getu fólks og að greina styrk­leika og þarfir hvers og eins. Mynd: Golli

1. Það sem er mikilvægast fyrir almennt heilbrigði og heilsu

„Í mínum huga bygg­ist heil­brigði fyrst og fremst á góðum venjum. Fólk þarf venjur sem halda því í stöð­ug­leik­anum, ekki skyndi­á­tök sem renna út eins og sandur í lófa. Ef venj­urnar eru heil­brigðar og passa inn í lífið, þarf fólk ekki alltaf að vera að byrja upp á nýtt. Helsti mun­ur­inn á þeim sem ná árangri og þeim sem alls ekki ná honum er ekki vilja­styrkur, heldur reglu­festa. Það er betra að mæta tvisvar til þrisvar sinnum í viku í sex mán­uði heldur en sex til sjö sinnum í viku, í fjórar vikur og hverfa svo.“

2. Næring – á að vera einföld, prótínrík og framkvæmanleg

„Fólk hefur til­hneig­ingu til að flækja nær­ing­una enda­laust. En lík­am­inn þarf endi­lega ekki alltaf ketó, carnivore eða eitt­hvað sem er allt eða ekk­ert. Líkaminn þarf stöð­ug­leika.

Það þarf að leggja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár