Þóra Kristín Þórarinsdóttir ólst upp á Frostastöðum í Skagafirði þar sem foreldrar hennar eiga sveitabæ og ferðaþjónustu. Á unglingsaldri flutti Þóra frá Frostastöðum til Akureyrar til að stunda nám við menntaskóla og síðar háskóla. Leiðin lá svo til Reykjavíkur. Þar bjó Þóra í nokkur ár með unnusta sínum, Rúnari Frey Þórhallssyni. Þegar parið komst að því að þau ættu von á barni ákváðu þau að flytja út í sveit. „Mér fannst svo heillandi að ala upp börnin mín í sveitinni,“ segir Þóra og brosir. „Það var það sem kom okkur aftur út í sveit, að fá að ala upp börnin okkar hérna.“
Kostirnir við að ala upp barn í sveit eru margir að sögn Þóru en þeir stærstu eru frelsið sem fjölskyldan hefur og hægari taktur í hversdagsleikanum. „Börnin mín munu geta labbað út á tásunum ef þau vilja og farið í einhverja ævintýraleiðangra, það er svo mikil víðátta“ …














Athugasemdir