Jólin snúast um hefðir hjá mörgum en Ragnar gaf okkur uppskrift að krónhirti, ásamt meðlæti, og segir að þetta sé afar ljúffegur réttur en krónhjörtur er ekki tímafrekur í eldamennsku og því tilvalin jólamáltíð.
Snöggeldaður krónhjörtur
með nípumauki, karmelliseruðu graskeri og rauðvínssósu
- 800 g krónhjartarlund (skorin í fjóra bita)
- salt og pipar
- smjör/olía til steikingar
- Látið kjötið standa á borði til að ná stofuhita. Saltið og piprið vandlega.
- Steikið á heitri pönnu þannig að kjötið sé jafnbrúnað. Komið hitamæli fyrir í kjötinu og setjið í 130 gráðu heitan ofn og eldið að kjarnhita. Látið standa í 10–15 mínútur undir álpappír til að kjötið nái að jafna sig.

Mynd: Kristinn Magnússon / Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nípumauk
- 2 stórar nípur
- 1 kúfuð teskeið af Edmont Fallot sinnepi
- 50 ml rjómi
- 50 g smjör
- salt og pipar
- Flysjið og sjóðið nípurnar í söltu vatni. Þegar þær eru mjúkar …












Athugasemdir