Á jóla­mark­að­inum Bjarni Viðar Sig­urðs­son leir­lista­maður í vinnu­stof­unni sinni. Hann hélt sinn árlega jóla­markað þar í 18. sinn upp úr miðjum nóv­em­ber. Mynd: Golli

Jólaljóð úr leir

Bjarni Viðar Sig­urðs­son leir­lista­maður býr ásamt eig­in­manni sínum, Guð­brandi Árna Ísberg sál­fræð­ingi, í ein­býl­is­húsi þar sem ljóst er að hver hlutur er vel val­inn og list­rænir hæfi­leikar njóta sín. Bjarni galdrar fram á vinnu­stof­unni við heim­ilið ævin­týra­leg lista­verk og nytja­muni sem hann selur víða um heim.

Það er boðið upp á pönnu­kökur í eld­húsi hjón­anna Bjarna Viðars Sig­urðs­sonar og Guð­brands Árna Ísberg. Nágranna­kona hafði komið með á bakka bæði upprúll­aðar með sykri og svo aðrar með sultu og rjóma. Það er góður andi á heim­il­inu. Á eld­hús­borð­inu stendur kerti með ljós­mynd af hundi. Leir­kross fyrir framan. Aska Kolku, 15 ára gam­allar Jack Russell Terrier-tíkur hjón­anna, hvílir í krukku við hlið kross­ins.

„Við vorum í útlöndum þegar þurfti að svæfa hana. Það var erfitt. Kolka var búin að vera veik og þetta ágerð­ist þegar við vorum úti og við vildum ekki láta bíða með að svæfa hana. Pabbi hennar kom með okkur frá Danmörku.“ Það er aug­ljóst að Kolka var ein af fjöl­skyld­unni.

Við ætlum að tala um jólin, heim­ilið og leir­inn og byrjum á jól­unum. Jóla­mark­að­inum.

„Ég hlakka alltaf til jól­anna. Hlakka til þess að fá dálitla pásu. Fá frið. Fá tíma með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár