Handhægir, hollir, góðir og ódýrir réttir

Hér koma þrjár upp­skriftir að hand­hægum, hollum og góðum réttum sem eru líka góðir fyrir budd­una. Auðvelt er að gera þessa rétti og þó að hrá­efn­islit­inn sé nokkuð langur í kjúklinga­rétt­inum þá er nokkuð víst að flestir eiga til kryddið og fleira sem fer í hann. Svo er engin skylda að hafa allt með og það má líka breyta, t.d. past­anu eða græn­met­inu í fisk­rétt­inum.

Handhægir, hollir, góðir og ódýrir réttir
Merry me-kjúklingur Merry me-kúk­linga­rétt­ur­inn með pasta.

Marry me-kjúklingur með orzo-pasta í einu fati

Þessi útgáfa af Merry me-kjúklinga­rétti er aðeins öðru­vísi en sú hefð­bundna en bæði hentug og mjög góð og upp­lagt að hafa hann um helgar eða bjóða fólki í.

Fyrir 4–6

4–6 kjúl­inga­bringur, skornar í bita

2 msk. ólífu­olía

4–5 hvít­lauks­geirar

3/4 bolli sól­þurrk­aðir tómatar

1 tsk. óreganó

2 tsk. papriku­duft

1 tsk. chili-flögur

1/2 tsk. salt­flögur

1 tsk. nýmal­aður svartur pipar

1 bolli orzo-pasta

2 3/4 cups kjúklinga­kraftur, eða vatn

3/4 bolli kókos­mjólk, eða rjómi

2 lúkur spínat

3/4 bollli parmesa­nostur

Aðferð:

Setjið óífu­olíu á pönnu, látið hitna og steikið kjúkling­inn á með­al­háum hita í 2–3 mín. Bætið þá sól­þurrk­uðum tómötum út í, hvít­lauk, kryddi og salti og pipar. Eldið áfram í 3–4 mín. Setjið orzo-pasta og kjúklinga­kraft út í og hrærið vel í. Eldið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár