Fæ mikið út úr því að hjálpa fólki

Guð­mundur Birkir Pálsson, best þekktur sem Gummi Kíró, er lífskúnstner, áhrifa­valdur og ást­fang­inn maður. Hann hefur gengið í gegnum ýmis­legt en í dag er haf­inn nýr kafli og á fal­legu heim­il­inu verða til margar hug­myndir, til dæmis varð­andi fyr­ir­hugað brúð­kaup hans og unnust­unnar.

Fæ mikið út úr því að hjálpa fólki
Í stof­unni heima Gummi seg­ist vera margar ólíkar mann­eskjur. Mynd: Golli

Sex hæða nútíma­legt fjöl­býl­is­hús. Hvít Tesla ekur upp að hús­inu og út úr bílnum stígur maður í hvítum fötum. Hann gengur inn í húsið og nokkrum mín­útum síðar fer blaða­maður sömu leið, vildi leyfa mann­inum að kom­ast alla­vega inn til sín.

Bjart er yfir íbúð­inni eins og yfir Guðmundi Birki Pálma­syni sem fleiri kann­ast við sem Gumma kíró. Hann er hlý­legur við fyrstu kynni. Eins og ein­hver ró sé yfir honum.

Hann býður til sætis í ljósum sófa í stof­unni. Hvítt marm­ara­borð er við sófann. Arco-lamp­inn frægi frá Flos eins og svífur yfir okkur þar sem hann stendur á hvítum marm­arastalli. Á móti er Eames-hús­bónda­stóll­inn frægi sem naut sín í fram­halds­þátt­unum um sál­fræð­ing­inn Frasier Crane sem varð fyrst vin­sæll í þátt­unum Staupa­steinn, Cheers.

Við ætlum að tala um hitt og þetta, og meira um íbúð­ina síðar.

Spegill sem er eins og lista­verkGummi hefur alltaf litið …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár