Pelargónía hreinsar loft og kryddar kökur

Pel­ar­gónía, einnig kölluð mána­brúður, er fjölær suður-afrísk planta sem hefur fest rætur í evr­ópskum görðum. Hún er vin­sæl sem úti­blóm hér á landi, bæði fyrir feg­urð sína og skor­dýra­fælandi eig­in­leika.

Pelargónía hreinsar loft og kryddar kökur

Nú nálg­ast tími úti­blómanna og lík­lega ein­hverjir sem hafa tekið for­skot á sæl­una enda hefur veðrið verið sól­ríkt og fag­urt. Pel­ar­gónía, oft nefnt Mána­brúður þó lat­neska heitið sé Pel­ar­gon­ium x hor­torum, er úti­blóm sem þekk­ist víða í Evrópu. Það má sjá undir gluggum og við úti­dyr og ástæðan fyrir því er að blómið fælir burt flugur og geit­unga.

Með sæförum frá Suður-Afríku

Pel­ar­gónía barst til Evrópu frá Suður-Afríku með land­könn­uðum og sæförum. Flestar þær pel­ar­gón­íu­teg­undir sem í ræktun eru koma frá Höfða­land­inu í Suður-Afríku, hafa teygt anga sína norður til Írans og til Ástralíu. Þær bár­ust til Evrópu með land­könn­uðum og sjó­far­endum á Austur-Ind­ía­skip­unum um og upp úr miðri sautj­ándu öld. Garð­yrkju­menn grasa­garða, greifa­setra og kon­ungs­hirða tóku þeim fagn­andi. Og af því að garð­yrkju­fólk er svo sem sjaldan ánægt með það sem það hefur og leit­ast ávallt við að gera meira og betur, þá leið ekki á löngu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár