Búðu til notalegt sumarathvarf

Með hlýju, gróðri og góðu skipu­lagi verður pallur, svalir eða garður að nota­legri fram­leng­ingu heim­il­is­ins fyrir bjart­ari daga.

Búðu til notalegt sumarathvarf

Að hanna úti­svæði snýst oft um að skapa fal­legt og aðlað­andi fram­hald af heim­il­inu þínu sem hentar þínum lífs­stíl og auð­vitað lofts­lagi. Hvort sem þú ert með stóran garð, nota­legan pall eða svalir þá er auð­velt að breyta pláss­inu og skipu­lag­inu í skemmti­legt svæði.

Að setja upp eld­stæði á pall­inn, þannig mynd­ast huggu­leg stemn­ing og hlýja, ekk­ert betra en á íslensku sum­ar­kvöldi að sitja með vinum eða ætt­ingjum og ylja sér við eld­inn.

Falleg úti­hús­gögn gera mikið fyrir úti­svæðið og ekki verra að hafa þau í tekki eða annarri sterkri við­ar­teg­und svo það end­ist betur í veðr­átt­unni á Íslandi, bæta við vatns­heldum púðum og teppum til að auka þæg­indin.

Stórar úti­mottur, ann­að­hvort undir sófa­svæði eða mat­ar­borði, er líka góð hug­mynd til að gefa svæð­inu smá extra hlýju.

Græn svæði eru alltaf jafn­aðl­að­andi fyrir augað og gaman að hafa nóg af plöntum og blómum í mis­mun­andi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár