Viðtal

Íslenski torfbærinn er magnað fyrirbæri

Arki­tekt­arnir og hjónin Ellert Hreins­son og Rebekka Pét­urs­dóttir reka arki­tekta- og hönn­un­ar­stúd­íóið FORMER. Þau voru beðin um að hanna ein­býl­is­hús með íslenska torf­bæ­inn sem fyr­ir­mynd og er húsið að verða til­búið. Það rís í tæp­lega 700 manna bæ og frá hús­inu er stór­kost­legt útsýni, meðal ann­ars út á haf.

Viðtal

Góð fjármál snúast um athygli

Íris Líf Stef­áns­dóttir er 25 ára eig­in­kona og móðir, stofn­andi bók­halds­stof­unnar Accounta og með bil­aðan metnað fyrir líf­inu að eigin sögn. Hún heldur einnig úti aðgangi á TikTok og Instagram þar sem hún talar lif­andi og opin­skátt um fjár­mál.

Innlit

Reykjavík, Svefneyjar og Miami

Áslaug Magn­ús­dóttir hefur víða komið við á far­sælum ferli og í dag er hennar aðal­starf fyr­ir­tæki hennar Katla. Hún bjó um ára­bil í London og síðan í New York en á þeim árum festi hún kaup á íbúðum bæði í Reykja­vík og Miami. Hún býr nú með fjöl­skyldu sinni meiri part árs­ins í íbúð sinni í Miami og á sumrin dvelur fjöl­skyldan mest í Svefn­eyjum á Breiða­firði sem eig­in­maður hennar á. Íbúð­irnar eru báðar eins og lista­verk og Svefn­eyjar nátt­úr­lega nátt­úru­lista­verk.

Viðtal

Trendin verða tengd náttúrunni

Áhugi Helgu Sig­ur­bjarna­dóttur á arki­tektúr kvikn­aði snemma, þar sem hún ólst upp við teikni­borðið hjá föður sínum, bygg­inga­fræð­ingi á Teikni­stof­unni Óðins­torgi. Helga lauk námi í inn­an­húss­arki­tektúr við IED og síðar meist­ara­námi í inn­an­húss­hönnun í Mílanó. Þá sneri hún heim til Íslands og hefur síðan starfað sem inn­an­húss­arki­tekt, við fjöl­breytt verk­efni, auk þess að hafa hannað vörur sem náð hafa alþjóð­legri útbreiðslu.

Grein

Þegar vinir kaupa saman íbúð

Embla Rún Hall­dórs­dóttir keypti í vetur íbúð með einum vini sínum. Það er frá­brugðið því að kaupa íbúð með maka sínum og vita þau til dæmis að þau munu einn dag­inn selja. Það komu upp vanda­mál með lánin vegna fryst­ingar líf­eyr­is­sjóðs og svo kom leki í ljós en í dag líður þeim vel í fal­legu íbúð­inni sinni. Þau eru með svip­aðan smekk og lögðu þau áherslu á hús­gögn úr dökkum við og skreyta heim­ilið meðal ann­ars tarot­spil og haus­kúpur.

Grein

Mér þykir einstaklega vænt um stellið sem var brúðargjöf

Ragn­hildur Sif Hafstein er lög­fræð­ingur og starfar í umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu, en á fal­legu heim­ili hennar og fjöl­skyld­unnar er ein­stak­lega fal­legt kaffi­stell og nokkrar bækur sem hún hefur fengið frá for­eldrum sínum.

Grein

Fleiri munu leita eftir sjónrænum þáttum en fullkomnun

Rannveig Þóra Karls­dóttir er nemi í graf­ískri hönnun við Lista­há­skóla Íslands og útskrif­ast í vor. Rannveig telur að á árinu 2026 verði breyt­inga að vænta. Óhefð­bundnar lita­sam­setn­ingar verði áber­andi og að hand­bragð og ófull­komnun verði meira áber­andi en áður. Hönnun verði „mann­legri“ sem geti skapað per­sónu­legri teng­ingu. Hún sér gervi­greind sem tæki til að stytta vinnu­ferla en leggur áherslu á að inn­sæi og hug­myndir hönn­uða skipti enn mestu máli og að fleiri leiti að sjón­rænum þáttum sem vegi á móti staf­rænum nýj­ungum og full­komnun.

Grein

Handhægir, hollir, góðir og ódýrir réttir

Hér koma þrjár upp­skriftir að hand­hægum, hollum og góðum réttum sem eru líka góðir fyrir budd­una. Auðvelt er að gera þessa rétti og þó að hrá­efn­islit­inn sé nokkuð langur í kjúklinga­rétt­inum þá er nokkuð víst að flestir eiga til kryddið og fleira sem fer í hann. Svo er engin skylda að hafa allt með og það má líka breyta, t.d. past­anu eða græn­met­inu í fisk­rétt­inum.

Hönnun

„Á meðan maður hefur ástríðuna þá heldur maður áfram“

Heim­il­is­blaðið sett­ist niður með Kjartani Páli Eyj­ólfs­syni, fram­kvæmda­stjóra Epal, sem hefur ein­sett sér að halda hug­sjón föður síns á lofti. Fyr­ir­tækið fagnar 50 ára afmæli í ár og leggur enn áherslu á sömu grunn­gildi og við stofnun þess, að bjóða upp á sígildar vörur sem end­ast.

Heimilið

Það má gera allt í leir

Jónína Guðna­dóttir mynd­list­ar­maður á langan og far­sælan feril að baki. Hún heill­að­ist ung af leirnum en hún er einnig lærð sem gler­l­ista­maður. Jónína hefur haldið margar sýn­ingar á ferl­inum og verið sískap­andi og óhrædd við að fara nýjar leiðir með efni og útfærslum í list sinni þar sem nátt­úran hefur veitt henni helst inn­blástur. Árið 2024. var haldin yfir­lits­sýn­ingin Flæð­ar­mál á verkum Jónínu í Hafn­ar­borg og sam­hliða var gefin út bók um hana og list­sköpun hennar undir sama heiti.

Heilsa

Reglufesta skiptir mestu máli fyrir heilbrigði

Björn Þór Sig­ur­björns­son einka- og styrkt­ar­þjálf­ari segir að fjórar grunn­stoðir heil­brigðs lífs­stíls séu nær­ing, svefn, hreyf­ing og streitu­stjórnun og að góð orka og lík­am­legur árangur æfinga, standi og falli með þessum fjórum stoðum.

Uppskrift

Hátíðarkokteilar

Það er alltaf gaman að hrista í nokkra kok­teila sér­stak­lega á tylli­dögum. Kok­teilar eru heill heimur af bragði, litum og stemn­ingu. Margir góðir kok­teilar fylgja for­múlu sem er: Áfengi, sítrus (súrt) og sætt (bragð­efni).

Innlit

Jólaljóð úr leir

Bjarni Viðar Sig­urðs­son leir­lista­maður býr ásamt eig­in­manni sínum, Guð­brandi Árna Ísberg sál­fræð­ingi, í ein­býl­is­húsi þar sem ljóst er að hver hlutur er vel val­inn og list­rænir hæfi­leikar njóta sín. Bjarni galdrar fram á vinnu­stof­unni við heim­ilið ævin­týra­leg lista­verk og nytja­muni sem hann selur víða um heim.

Uppskrift

Jólin snúast um hefðir

Ragnar Freyr Ingv­ars­son er löngu kunnur fyrir mat­reiðslu­bækur sínar og elda­mennsku en upp­skriftir hans eru alltaf afbragðs­góðar

Hönnun

Íslenskt jólaskraut

Jóla­sveinar, Grýla, Leppalúði, jóla­kött­ur­inn, englar, jóla­tré, snjó­korn og hand­smíðuð jóla­tré í skand­in­av­ískum stíl. Hæfi­leikar fólks þegar kemur að hönnun, svo sem jóla­skrauti, eru miklir og íslenskir hönn­uðir eru engin und­an­tekn­ing.

Garðurinn

„Við tölum aldrei um galla, við tölum bara um karakter“

Í Heiðmörk er við­ar­vinnsla á vegum Skóg­rækt­ar­fé­lags Reykja­víkur. Þar er grisj­un­ar­viður nýttur í burð­ar­þol, eld­húsinn­rétt­ingar, kofa og fleira. Starfs­menn við­ar­vinnsl­unnar segja sjálf­bærni lyk­il­at­riði og vilja þeir stuðla að upp­byggi­legu skóg­ar­sam­tali. Það er til dæmis gert með því að fá tré­smíða­nema í vett­vangs­ferðir.

Mest lesið undanfarið ár