Mér þykir einstaklega vænt um stellið sem var brúðargjöf

Ragn­hildur Sif Hafstein er lög­fræð­ingur og starfar í umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu, en á fal­legu heim­ili hennar og fjöl­skyld­unnar er ein­stak­lega fal­legt kaffi­stell og nokkrar bækur sem hún hefur fengið frá for­eldrum sínum.

Mér þykir einstaklega vænt um stellið sem var brúðargjöf

Ragn­hildur segir það skipta sig máli að hafa bæði þetta stell og bæk­urnar, sér þyki vænt um hvort tveggja og noti stellið og gluggi í bæk­urnar sem eru frá langafa hennar, Hannesi Hafstein, fyrsta ráð­herra Íslands, sem var mjög merkur og fram­sýnn maður sem gerði ýmis­legt fyrir íslenskt þjóð­fé­lag sem við njótum góðs af í dag.

Aðspurð segir Ragn­hildur að for­eldrar hennar hafi fengið stellið sem um ræðir í brúð­ar­gjöf frá for­eldrum sínum. „Þetta er danskt stell frá Royal Copenhagen, hand­málað og kall­ast Bláa blómið, með gamla lag­inu, en pabbi og mamma giftu sig 1. júlí árið 1972. Mér þótti þetta stell alltaf fal­leg­ast af öllum borð­bún­aði hjá mömmu og pabba. Mér þykir afar vænt um þetta stell og nota það við hátíð­legri tæki­færi, fjöl­skyldu­veislur, kaffi­boð, skírnir og þess háttar og finnst rosa­lega gaman að geta notað það. Það er fyrir 16 manns og svo eru fylgi­hlutir, kaffi- eða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár