Kári Gylfason, verkefna- og ritstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, stendur fyrir utan viðarvinnslu félagsins og tekur brosandi á móti blaðamanni. Við vélsögina er Teitur Björgvinsson, umsjónarmaður viðarvinnslunnar og lærður húsgagnasmiður, með trjábol við höndina.
Í viðarvinnslunni er grisjunarviður úr Heiðmörk nýttur á sjálfbæran hátt í húsgögn, innréttingar, bekki og aðra nytsamlega hluti. Þangað er einnig hægt að flytja tré af höfuðborgarsvæðinu og eru þau þá nýtt í sams konar verkefni.

Engir gallar, bara karakter
Viðarvinnslan hefur verið til í 15 ár en umsvif hennar hafa stigmagnast síðustu fimm ár samhliða auknum trjávexti í Heiðmörk.
Nýverið hlaut Skógræktarfélag Reykjavíkur styrk frá Aski, mannvirkjarannsóknasjóði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, til að kanna hvað þarf til að fella, þurrka og nýta aspir og garðahlyni úr höfuðborginni. „Mikið af þeim harðviði sem er á Íslandi liggur í görðum,“ útskýrir Teitur. Hann …











Athugasemdir