Nýtir umframefni á skapandi hátt

Tómas Þórsson er mennt­aður hús­gagna­smiður og hönn­uður. Hann hefur vakið athygli hér á landi og erlendis fyrir smíði sína og hönnun.

Hönnuðurinn og húsgagnasmiðurinn
Hönn­uð­ur­inn og hús­gagna­smið­ur­inn „Það sem ég er að fók­usera á núna er að nýta þetta efni og sýna þá mögu­leika sem eru til staðar hvað þessi umfram­efni varðar.“ Mynd: Golli

Annar afi Tómasar Þórs­sonar, Bernharð Hann­es­son, rak véla­verk­stæði og þegar Tómas var strákur var hann stundum á verk­stæð­inu hjá afa sínum og fylgd­ist með. Faðir Tómasar er kvik­mynda­gerð­ar­maður og móðir hans háskóla­kenn­ari og um tíu ára gam­all var hann far­inn að búa til bíó með krökk­unum í hverf­inu, eins og hann orðar það. Í kringum tví­tugt var hann mikið í ljós­myndun og vann við kvik­mynda­gerð í svo­lít­inn tíma. „Ég var að prófa hitt og þetta. Ég ætl­aði á tíma­bili að fara í kvik­mynda­brans­ann en sá svo að sá lífs­stíll var ekki alveg fyrir mig. Ég var svo í frum­kvöðla­starfi og stofn­aði fyr­ir­tæki sem fram­leiddi vítamín­drykki, vann sem plötu­snúður í mörg ár ásamt því að prófa hin og þessi hluta­störf. Ég nýtti „tví­tugs­árin“ til þess að prófa mis­mun­andi starfs­vett­vang og nám. Á þessum tíma var ég alls ekki viss um hvaða grein ég vildi til­einka mér en vissi að ég vildi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár