Mynd: Golli

Góð fjármál snúast um athygli

Íris Líf Stef­áns­dóttir er 25 ára eig­in­kona og móðir, stofn­andi bók­halds­stof­unnar Accounta og með bil­aðan metnað fyrir líf­inu að eigin sögn. Hún heldur einnig úti aðgangi á TikTok og Instagram þar sem hún talar lif­andi og opin­skátt um fjár­mál.

Áhuginn á fjár­málum kvikn­aði þegar Íris fór að reka eigið heim­ili. Hún hefur þó alltaf verið spar­söm og segir pen­inga skipta miklu máli þegar kemur að því að móta lífið sem maður vill lifa.

„Ég horfi á pen­inga sem lykil að frelsi og þess vegna finnst mér þeir svona mik­il­vægir. Ég vil hafa frelsi í eigin lífi til þess að gera það sem mig langar til.“

Íris fylgist vel með fjár­málum heim­il­is­ins en segir það ekki þurfa að vera tíma­frekt.

„Ég skoða hvað kom inn, hvað fór út og hvort það passar við það sem við ætl­uðum okkur. Þetta tekur alls ekki langan tíma þegar það er orðið að venju. Fólk heldur nefni­lega oft að þetta snú­ist um að vera mjög góður í Excel. Það snýst miklu frekar um að vita hvar þú stendur, því þá get­urðu tekið ákvarð­anir í stað­inn fyrir að vona.“

Hausthreingerning í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár