Getur símaúrið bjargað fjármálunum?

Ónotaðar áskriftir og sjálf­virkar greiðslur geta farið fram hjá okkur árum saman. Dagbók yfir útgjöld og til­finn­ingar getur hjálpað til við að skilja neyslu­mynstur og ná betri yfir­sýn.

Getur símaúrið bjargað fjármálunum?
Borgað með síma­úri Það er auð­velt að greiða með síma­úri og spá ekki frekar í eyðsl­una. Mynd: Arsenii Palivoda

Flest okkar lifa í ákveðnu með­vit­und­ar­leysi gagn­vart eigin fjár­málum þar til í harð­bakka slær. Við lítum gjarnan á pen­inga sem eitt­hvað sem ein­fald­lega fylgir líf­inu, laun koma inn, útgjöld fara út og þar á milli vonum við að eitt­hvað sitji eftir. Peningar bregð­ast við því hvernig við umgöng­umst þá. Þeir geta safn­ast upp eða smám saman horfið, án þess að það sé endi­lega áber­andi. Smáar ákvarð­anir sem virð­ast óveru­legar þegar þær eru teknar hafa þannig upp­söfnuð áhrif. Þetta eru ekki endi­lega rangar ákvarð­anir en þær hafa fengið að end­ur­taka sig óáreittar.

Í fjár­málum er gjarnan rætt um mik­il­vægi sjálf­virkni. En þegar greiðslur verða algjör­lega ósýni­legar, eins og þegar við borgum með úrinu eða í gegnum vistuð kort, hverfur þessi eðli­legi nún­ingur sem áður fékk okkur til að staldra við. Þegar því fylgir engin áreynsla að eyða, hættum við að finna fyrir því þegar pen­ing­arnir yfir­gefa okkur og hættum að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár