Trendin verða tengd náttúrunni

Áhugi Helgu Sig­ur­bjarna­dóttur á arki­tektúr kvikn­aði snemma, þar sem hún ólst upp við teikni­borðið hjá föður sínum, bygg­inga­fræð­ingi á Teikni­stof­unni Óðins­torgi. Helga lauk námi í inn­an­húss­arki­tektúr við IED og síðar meist­ara­námi í inn­an­húss­hönnun í Mílanó. Þá sneri hún heim til Íslands og hefur síðan starfað sem inn­an­húss­arki­tekt, við fjöl­breytt verk­efni, auk þess að hafa hannað vörur sem náð hafa alþjóð­legri útbreiðslu.

Trendin verða tengd náttúrunni

Hver er þinn bak­grunnur?

Ég fékk snemma áhuga á arki­tektúr og eyddi ófáum stundum á teikni­stof­unni með pabba en hann var bygg­inga­fræð­ingur og vann lengi á Teikni­stof­unni Óðins­torgi. Þar fylgd­ist ég með þegar heilu húsin voru hönnuð og ákvað að þegar ég yrði stór þá myndi ég vilja vera inn­an­húss­arki­tekt og setti mér það mark­mið að einn dag­inn myndi ég láta þann draum ræt­ast.

Eftir tvö ár í Versl­un­ar­skóla Íslands fór ég í Iðn­skól­ann í Reykja­vík og kláraði tækni­teiknun, tók mér svo nokk­urra ára pásu frá námi en sett­ist svo aftur á skóla­bekk árið 2000 og fór þá í Iðn­skól­ann í Hafn­ar­firði á hönn­un­ar­braut.

Í fram­hald­inu sótti ég svo um inn­an­húss­arki­tekta­nám við IED í Mílanó á Ítalíu, komst inn og flutti þangað með mann og hóp af börnum.

Þar kláraði ég inn­an­húss­arki­tektúr með hæstu ein­kunn sem gefin er þar, eða 30 cum laude. Strax þar á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár