Það var árið 2022 sem arkitektarnir og hjónin Ellert Hreinsson og Rebekka Pétursdóttir stofnuðu arkitekta- og hönnunarstúdíóið FORMER sem starfar á sviði byggingarlistar, innanhúss-, landslags- og vöruhönnunar, eins og segir á heimasíðu fyrirtækisins. Þau höfðu farið saman út til náms í arkitektúr og útskrifuðust árið 2012 frá SCAD (Savannah College of Art & Design) í Savannah og fóru eftir að heim kom að vinna hvort á sinni teiknistofu; Rebekka byrjaði fyrst að vinna hjá landslagsarkitekt áður en hún fór svo að vinna á arkitektastofu. Þau hönnuðu fyrsta einbýlishúsið saman árið 2017 og eftir að þau stofnuðu FORMER hafa verkefnin verið fjölbreytt og má þar nefna heimili og fyrirtæki.
Það var svo snemma árs 2023 að erlend hjón, sem hafa verið búsett hér á landi um árabil, höfðu samband við arkitektana. Þau voru með óskir um að hannað yrði einbýlishús með vísan í íslenska torfbæinn. „Mér finnst það dálítið skemmtilegt …












Athugasemdir