Skólabyrjun getur haft áhrif á námsárangur, þroska og vellíðan til lengri tíma

Dr. Björn Rúnar Egilsson er lektor við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands. Rann­sóknir hans bein­ast meðal ann­ars að skilum skóla­stiga, sjón­ar­hóli for­eldra barna með fjöl­breyttan tungu­mála- og menn­ing­ar­bak­grunn og full­gildi.

Skólabyrjun getur haft áhrif á námsárangur, þroska og vellíðan til lengri tíma
Skóla­byrjun Björn Rúnar Egilsson segir góð sam­skipti heim­ilis og skóla, vin­áttu barna og tengsl við kenn­ara stuðla að jákvæðri skóla­byrjun.

Björn veitir hér fimm ráð um það þegar börn fara úr leik­skóla yfir í grunn­skóla og þær áskor­anir sem því geta fylgt.


1. Einn af lykilviðburðum lífsins

Grunn­skóla­byrjun er talin einn af lyk­il­við­burðum lífs­ins og lík­leg til þess að hafa áhrif á náms­ár­angur, þroska og vellíðan til lengri tíma. Jákvæð skóla­byrjun hefur verið tengd við auk­inn náms­ár­angur og félags­færni. Góð sam­skipti og sam­vinna á milli heim­ilis og skóla ásamt vin­áttu­sam­böndum barna og góðum tengslum við kenn­ara eru gjarnan talin til þeirra þátta sem stuðla að jákvæðri skóla­byrjun.

2. Gefum okkur tíma til að mynda ný tengsl

Mætum í for­eldra­við­töl og við­burði í skól­anum, kynn­umst umsjón­ar­kenn­ara barns­ins og for­eldrum vina og bekkj­ar­systk­ina. Mætum í skól­ann þegar tæki­færi gef­ast. Setjum okkur inn í stunda­skrár og við­fangs­efni barns­ins og kynn­umst skólaum­hverf­inu (bygg­ing­unni, lóð­inni og nálægum kenni­merkjum í nærum­hverf­inu). Það getur auð­veldað okkur við að öðl­ast inn­sýn í reynslu­heim …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár