Það er margt í dag til að vera þakklátur fyrir

Draumey Ara­dóttir, kenn­ari og skáld, fór í sveit á hverju sumri frá því hún var barn og vel fram á ung­lingsár. Hún var hjá afa sínum og ömmu á Hnjóti á sunn­an­verðum Vest­fjörðum en þar hefur verið til margra ára þekkt byggða­safn. Draumey á merki­lega hluti eftir ömmu sína sem eru lýsandi fyrir lífið áður fyrr og segir hún ver­una í sveit­inni hafa haft mikil áhrif á við­horf sitt og þakk­læti til lífs­ins.

Það er margt í dag til að vera þakklátur fyrir

„Nú færðu að sjá grip­inn. Þetta er athöfn,“ segir Draumey þegar hún kemur með 200 ára gamla stóra mjólk­ur­könnu frá Svíþjóð. „Ég elska allt gam­alt og held að ég hafi fæðst á rangri öld. Nú fer að stytt­ast í góssið, hér eru prjón­a­ðir leppar af henni ömmu minni, heilir og fínir. Og nú koma aðal­hlut­irnir en þetta eru sem sagt roð­skinns­skór sem amma mín saum­aði. Hún herti stein­bíts­roð og saum­aði skóna og prjón­aði líka lepp­ana í þá. Ég er með ung­linga­skó og full­orð­ins­skó, fisk­roðið er aðeins farið að brotna á einu par­inu því þetta er orðið svo stökkt. Ég átti eitt par enn, barna­skó með litlum leppum ofan í og hafði þá á vegg­hillu. Þá átti ég bæði hund og kött og það er skemmst frá því að segja að skórnir fóru í hund­inn og kött­inn. Það var sam­vinna, kött­ur­inn fór upp á hillu og ýtti skónum fram af og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár