Það skiptir öllu máli að hafa fallega list í kringum sig

Áslaug Íris Katrín Frið­jóns­dóttir er ein af okkar yngri mynd­list­ar­mönnum sem er mjög virk en verk hennar hafa verið sýnd á sýn­ingum í söfnum og gall­er­íum á Íslandi, í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Þann 24. maí verður einka­sýn­ingin Speg­il­mynd opnuð í Þulu gall­eríi i Marshall-hús­inu en eitt verk­anna hangir á vegg sem við fengum að sjá, verk sem talar inn í sam­tím­ann að mörgu leyti.

Það skiptir öllu máli að hafa fallega list í kringum sig

Áslaug Íris fædd­ist árið 1981 í Reykja­vík. Hún lauk B.A.-gráðu í mynd­list frá Lista­há­skóla Íslands árið 2006 og M.F.A.-gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Áhuginn á mynd­list kvikn­aði snemma hjá Áslaugu en hún seg­ist hafa verið alin upp við mynd­list í kringum sig og að hún hafi haft unun af að velta henni enda­laust fyrir sér. Hún telur mjög mik­il­vægt að hafa fal­lega mynd­list í kringum sig, mynd­listin hafi sitt eigið tungu­mál líkt og tón­listin sem hægt sé að upp­lifa í gegnum til­finn­ingar og skynjun.

„Verk mín ein­kenn­ast af ríkri efn­is­kennd. Ég leita merk­ingar í fjöl­breyttu efn­isvali og aðferðum. Ég not­ast við þung efni eins og fúgu og steina sem fram­kalla jarð­teng­ingu í mót­vægi við óhlut­bundið mynd­mál og oft og tíðum loft­kennda fag­ur­fræði verk­anna. Höf­uð­við­fangs­efni verka minna er skynjun okkar og marglaga sjón­ar­horn. Hvernig við skynjum tíma í marg­vís­legum skiln­ingi og vídd­irnar í kringum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Veggurinn

Mest lesið undanfarið ár