
Það skiptir öllu máli að hafa fallega list í kringum sig
Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir er ein af okkar yngri myndlistarmönnum sem er mjög virk en verk hennar hafa verið sýnd á sýningum í söfnum og galleríum á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum. Þann 24. maí verður einkasýningin Spegilmynd opnuð í Þulu galleríi i Marshall-húsinu en eitt verkanna hangir á vegg sem við fengum að sjá, verk sem talar inn í samtímann að mörgu leyti.

