Hallveig segist hafa fundið áhugann á að elda góðan mat þegar hún flutti að heiman og að öll systkinin hafi mjög gaman af því að elda góðan mat. Hún hafi þó ekki endilega alist upp við mataráhuga og gourmet-eldamennsku. „Ég ólst upp í stórri fjölskyldu og áherslan því ekki á gourmet-mat enda áhugasviðið ekki endilega þar hjá foreldrum mínum sem voru bæði ríkisstarfsmenn og sungu í kórum, svo var heldur ekki tími á stóru heimili. Í dag hefur mamma tímann og þá kemur í ljós að hún er fínasti kokkur. Ég ólst upp við að borða sjófugl og hvalkjöt sem var örugglega á borðum á mörgum heimilum á þeim tíma. Mataráhuginn hjá mér kviknaði þegar ég flutti að heiman sumarið sem ég var 19 ára og ég leigði með tveimur vinum mínum, Þóru Björk Ólafsdóttur vinkonu og Gunnari Hrafni, mjög góðum vini, við höfðum gaman af því að elda góðan …
Finnur sköpun og hvíld í eldamennskunni
Hallveig Rúnarsdóttir söngkona er með mörg járn í eldinum en hún söng nýverið óperuna Símann eftir Menotti í Iðnó í hádeginu í júní og júlí. Eins og nafnið bendir til á efnið ríkt erindi við fólk. Hallveig er mikill matgæðingur, hún hefur bloggað um mat og þróað margar uppskriftir. Hún segir það oft ráða för hvað hún eigi í ísskápnum þegar hún eldar kvöldmatinn enda sé hún mjög mikið á móti matarsóun.












Athugasemdir