Finnur sköpun og hvíld í eldamennskunni

Hallveig Rún­ars­dóttir söng­kona er með mörg járn í eld­inum en hún söng nýverið óper­una Símann eftir Menotti í Iðnó í hádeg­inu í júní og júlí. Eins og nafnið bendir til á efnið ríkt erindi við fólk. Hallveig er mik­ill mat­gæð­ingur, hún hefur bloggað um mat og þróað margar upp­skriftir. Hún segir það oft ráða för hvað hún eigi í ísskápnum þegar hún eldar kvöld­mat­inn enda sé hún mjög mikið á móti mat­ar­sóun.

Finnur sköpun og hvíld í eldamennskunni

Hallveig seg­ist hafa fundið áhug­ann á að elda góðan mat þegar hún flutti að heiman og að öll systk­inin hafi mjög gaman af því að elda góðan mat. Hún hafi þó ekki endi­lega alist upp við mat­ar­á­huga og gourmet-elda­mennsku. „Ég ólst upp í stórri fjöl­skyldu og áherslan því ekki á gourmet-mat enda áhuga­sviðið ekki endi­lega þar hjá for­eldrum mínum sem voru bæði rík­is­starfs­menn og sungu í kórum, svo var heldur ekki tími á stóru heim­ili. Í dag hefur mamma tím­ann og þá kemur í ljós að hún er fín­asti kokkur. Ég ólst upp við að borða sjó­fugl og hval­kjöt sem var örugg­lega á borðum á mörgum heim­ilum á þeim tíma. Mat­ar­á­hug­inn hjá mér kvikn­aði þegar ég flutti að heiman sum­arið sem ég var 19 ára og ég leigði með tveimur vinum mínum, Þóru Björk Ólafs­dóttur vin­konu og Gunnari Hrafni, mjög góðum vini, við höfðum gaman af því að elda góðan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár