Nýjungar í matvöru

Frakkar er frægir sæl­kerar og margir vörp­uðu önd­inni léttar þegar ljóst var að franska sæl­kera­versl­unin Hyalín hafði fengið nýja eig­endur eftir að fyrr­ver­andi eig­endur ákváðu að hætta með versl­un­ina. Hyalín selur hágæða mat­vörur, sultur, fois gras, kex fyrir osta, olíur, panetone fyrir jól og margt fleira að ógleymdu franska hun­ang­inu. Nú þegar sum­arið er komið sækir fólk í ferskari mat­vöru og eitt­hvað sem er gott með grill­matnum.

Nýjungar í matvöru

Ólífu­olía frá Kalios no.1 er hágæða olía sem vann nýlega til gull­verð­launa á alþjóð­legu ólífu­ol­íu­keppn­inni sem haldin var í London í lok síð­asta árs. Olían er eft­ir­læti stjörnu­kokka úti í heimi og gerir allan mat betri, góð út á salöt, fisk með góðu brauði og svo mætti áfram telja. Kemur í fal­legri flösku. Fæst í Hyalín.

Ítalskt grass­ini er alltaf gott að eiga. Það er bæði afar bragð­gott og gefur boð­inu ekta ítalskan blæ, auk þess sem gaman er að borða stang­irnar. Þær eru góðar með osta­bakk­anum eða á mat­borðið með ýmsum réttum. Þessar eru frá Nicolas Vahé og eru krydd­aðar með rós­mar­íni en inni­halda fá hrá­efni. Fakó, verð, 1.480 kr.

Aceto balsamico alla Pesca bianca er líf­rænt bals­a­mikedik með ferskju­bragði. Það er búið til úr ferskjum úr líf­rænum þrúgum og safa úr líf­rænum hvítum ferskjum, en í vör­unni er eng­inn við­bættur sykur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár