Brúðkaupssiðir í gegnum aldirnar

Íslenskir siðir og venjur hafa tekið stakka­skiptum í gegnum ald­irnar af ýmsum ástæðum. Hvort sem það eru siða­skipti, hall­æri, nátt­úru­ham­farir, hung­ursneyð eða skipti á nýlendu­herrum þá eru senni­lega fáir siðir úr fornu minni okkar sem heiðraðir eru í nútím­anum.

Brúðkaupssiðir í gegnum aldirnar

Á dimmum tímum er mik­il­vægt að finna ljós í myrkr­inu og hvað færir okkur meira ljós en gott partí? Það er engin til­viljun að til forna hafi hátíð ljóss og friðar verið haldin hátíð­leg á vetr­ar­sól­stöðum, enda er það mikið gleði­efni þegar bjart­ari tímar eru fram undan. Í riti Árna Björns­sonar, Merk­is­dagar á mannsæv­inni, segir að brúð­kaup voru oft og tíðum haldin í þrjá daga fram á 17. öld. Þá gátu gestir skipt hund­ruðum hjá stór­lyndum mönnum, en þetta er nokkuð magnað þegar litið er til smæðar Íslands, fjar­lægða milli staða og erf­ið­leika til að ferð­ast á milli. Algeng­ast var að brúð­kaup voru haldin að hausti enda hafði sum­arönnum lokið á þeim tíma og nóg var til af kjöti til að fæða allan mann­skap­inn og sum­ar­skipin komu með öl og vín til lands­ins svo að hægt væri að væta kverkar gest­anna. Einnig segir Árni að sex vottar þurfti að hafa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár