Ykkar brúðkaup – og þið megið hafa það eins og þið viljið

Þegar plana á hjóna­vígslu og brúð­kaups­veislu eru oft miklar vanga­veltur um það hvað má og hvað má ekki. Svarið er ein­falt, þetta er ykkar dagur og þið megið haga honum nám­kvæm­lega eins og ykkur sýn­ist eða hentar.

Ykkar brúðkaup – og þið megið hafa það eins og þið viljið

„It´s my party and I‘ll cry if I want to“ söng Lesley Gore á plöt­unni I‘ll Cry if I Want to árið 1963. Það er ekki óal­gengt að gleði­tár séu felld á svo merkum tíma­mótum eins og vígslu til hjóna­bands, enda gríð­ar­lega til­finn­inga­þrungin stund. Við mann­fólkið erum eins mis­mun­andi og við erum mörg og þar af leið­andi er hinn full­komni brúð­kaups­dagur ekki eins í hugum okkar allra. Sum okkar sjá hvíta brúð­arslörið og gríð­ar­stóra veislu sem stendur fram á rauða nótt í hill­ingum á meðan önnur sjá fyrir sér huggu­lega veislu með kaffi og með því að degi til.

Huggulegt kaffiboð

Það er hægt að gera sér glaðan dag með góðu kaffi­hlað­borði fyrir fjöl­skyldu og vini. Þetta er sér­stak­lega væn­legt fyrir þau sem vilja bjóða börn vel­komin í sína veislu. Það getur oft verið strembið að finna pössun fyrir yngstu fjöl­skyldu­með­lim­ina, sér­stak­lega þegar allir nán­ustu vinir og fjöl­skyldu­með­limir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár