„Að upplifa allt með mínu besta fólki þótti mér vænst um“

Edda Björk Ragn­ars­dóttir og Magnús Ósk­ars­son, sem bæði eru lög­fræð­ingar, giftu sig í Breiða­bóls­stað­ar­kirkju í Fljóts­hlíð­inni í ágúst 2024. Brúð­kaupið var ekki ein­ungis stóri dag­ur­inn því allur und­ir­bún­ingur, sam­vera með fjöl­skyldu og vinum í und­ir­bún­ingnum og þátt­taka þeirra, og jafn­vel sveit­unga, átti stóran þátt í að gera brúð­kaupið ein­stakt. Edda Björk lagði sitt af mörkum til að slíkt yrði enda vildi hún að hennar nán­ustu myndu taka þátt í gleð­inni með henni. Hún segir það hafa verið eft­ir­minni­leg­ast.

„Að upplifa allt með mínu besta fólki þótti mér vænst um“

Edda Björk starf­aði sem lög­fræð­ingur í Genf, var ánægð með lífið og sá ekki fyrir sér að gift­ast. Það átti þó eftir að breyt­ast snögg­lega. „Við Maggi kynnt­umst tveimur árum fyrir Covid, ég var að verða 30 og hann 35. Ég var í sum­ar­fríi á Íslandi og fór í mat­ar­boð hjá frænku minni og hennar manni, ég var nátt­úr­lega spurð hvort ég væri að hitta ein­hvern. Ég sagði að það væri ekk­ert á dag­skránni, ég hefði ekki fundið neinn sem ég sæi fyrir mér sem eig­in­mann. Þá segir frænka mín við mann­inn sinn: Hvernig er með hann Magnús sem vinnur með þér á stof­unni, er hann ekki einn? Mér leist vel á mynd sem ég sá af honum, add­aði honum á Instagram og hann sendi mér svo skila­boð. Við ákváðum síðan að hitt­ast og það small eitt­hvað hjá okkur og ég varð fljótt ást­fangin,“ segir hún og brosir.

Maggi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár