Jóhanna Þórhallsdóttir er síkvik og lærði ekki fyrir löngu þá list að kveða rímur og nú fer hún víða með eiginmanni sínum, Óttari Guðmundssyni, geðlækni og rithöfundi, til að kynna bók hans um Sigurð Breiðfjörð sem kom út fyrir jól, og kveður þá rímur. Jóhanna hefur alltaf verið mjög skapandi, sem kemur meðal annars fram í matargerðarlistinni. Hún er orðlagður listakokkur og mikill matgæðingur en hún gefur hér upp nokkrar uppskriftir sem hafa fylgt henni í gegnum árin og eru undir áhrifum af þeim stöðum sem hún hefur átt heima eða dvalið á.
Jóhanna er mikil stemningskona og hefur gaman af að bjóða í mat og gjarnan með litlum fyrirvara. Fjölskylda Jóhönnu og Óttars er stór, telur um 30 manns samanlagt og oft býður hún krökkunum í mat, eins og hún segir. Það eru ákveðnir réttir sem henni finnst gaman að elda þegar hún fær gesti, réttir sem eru …














Athugasemdir