Björn veitir hér fimm ráð um það þegar börn fara úr leikskóla yfir í grunnskóla og þær áskoranir sem því geta fylgt.
1. Einn af lykilviðburðum lífsins
Grunnskólabyrjun er talin einn af lykilviðburðum lífsins og líkleg til þess að hafa áhrif á námsárangur, þroska og vellíðan til lengri tíma. Jákvæð skólabyrjun hefur verið tengd við aukinn námsárangur og félagsfærni. Góð samskipti og samvinna á milli heimilis og skóla ásamt vináttusamböndum barna og góðum tengslum við kennara eru gjarnan talin til þeirra þátta sem stuðla að jákvæðri skólabyrjun.
2. Gefum okkur tíma til að mynda ný tengsl
Mætum í foreldraviðtöl og viðburði í skólanum, kynnumst umsjónarkennara barnsins og foreldrum vina og bekkjarsystkina. Mætum í skólann þegar tækifæri gefast. Setjum okkur inn í stundaskrár og viðfangsefni barnsins og kynnumst skólaumhverfinu (byggingunni, lóðinni og nálægum kennimerkjum í nærumhverfinu). Það getur auðveldað okkur við að öðlast innsýn í reynsluheim …














Athugasemdir