Kaffibrennslan, sem er á horni Laugavegs og Klapparstígs, býður upp á jólaglögg og lætur nokkrar piparkökur fylgja í kaupbæti. Á staðnum er boðið upp á létta rétti og bakkelsi og hægt er að sitja bæði inni og úti í gróðurhúsinu. Munið bara að súpa jólaglöggið hratt til að ylja ykkur að innan ef þið veljið að sitja úti.
Á Rósenberg, sem er til húsa á Vesturgötu 3, er boðið upp á bragðgott jólaglögg með möndluflögum og rúsínum. Eins og á Kaffibrennslunni er boðið upp á piparkökur með glögginu. Þar er afar kósí að vera og tilvalið fyrir þau sem vilja hlýja sér í huggulegu umhverfi eftir gott bæjarrölt.
Veitingastaðurinn Bastard á Vegamótastíg býður upp á hlýlega og „rustic“ stemningu. Þar er hægt að fá mat og drykki af ýmsu tagi og staðurinn tekur virkan þátt í hvers kyns hátíðum. Jólin eur þar að sjálfsögðu ekki undanskilin, …












Athugasemdir