
Töfrasproti sem gerir allt Töfrasproti er í uppáhaldi hjá mörgum, en hann má nota til margra hluta eins og að mauka grænmeti í súpur, þegar tekið er til í ísskápnum, eða afgangar notaðir og matur sem er kominn á síðasta snúning. Eins er gott að mauka mat ofan í ungbörn. Þessi töfrasproti er nýr og tekur matseldina á næsta stig. Hann er frá fyrirtækinu Bamix og mótorinn er 300 w, hann hefur mikinn snúningskraft og er einstaklega öflugur. Töfrasprotinn hakkar, þeytir, hrærir, maukar grænmeti, ávexti, en einnig kjöt o.fl. Á töfrasprotanum eru tvær hraðastillingar og honum fylgir mismunandi búnaður til að nota á matinn. Kokka, 42.900 kr.

Heimgerðar pitsur eru alltaf einstaklega góðar en hér er pitsusteinn sem gerir deigið afar gott því steinninn dregur í sig raka úr deiginu þannig að skorpan verður stökk, eins og við viljum hafa hana. Pitsusteinninn er gerður úr efni frá …














Athugasemdir