Keramíkverk eru tímalaus

Inga Elín, mynd­list­ar­maður og hönn­uður, leggur mikið upp úr að þæg­indi, nota­gildi og feg­urð fari saman í keramíkverkum hennar enda eru margir muna hennar þannig að hægt er að nota þá á fleiri en eina vegu. Hún hannar nytja­hluti, list­muni og einnig verð­laun og hefur vart undan.

Keramíkverk eru tímalaus

Ingu Elínu finnst gaman að gera skúlp­t­úra og stærri verk en hennar þekkt­ustu verk eru þó smærri, eins og velti­boll­arnir svoköll­uðu, þar sem fal­leg hönnun og smá­at­riðin leika vel saman ásamt nota­gildi. Árið 2020 opn­aði Inga Elín nýtt gall­erí, ásamt syni sínum, Kristni Ísaki Ingusyni, sem er fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, á sama stað þar sem hún hafði verið með gall­erí 25 árum áður á Skóla­vörðu­stíg. Hönnun Ingu Elínar spannar vítt svið, munir hennar eru stórir og smáir, allt frá klass­ískum svart-hvítum upp í fág­aða og glæsi­lega gyllta.

Inga Elín seg­ist hafa haft áhuga á öllum greinum mynd­list­ar­innar, það hafi þó verið eitt­hvað við leir­inn sem heill­aði hana. Hún byrj­aði ung að læra mynd­list og á 10 ára menntun að baki í mynd­list og keramík. Hún var í fimm ár í Mynd­lista- og hand­íða­skól­anum og útskrif­að­ist þaðan sem mynd­mennta­kenn­ari. Þá hóf hún kennslu í mynd­mennt 21 árs gömul og kenndi í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár