Tímalaus sveitaþokki við Miðjarðarhafið

Inn­blástur frá Suður-Frakk­landi birt­ist í hlýjum litum, nátt­úru­legum efnum og arki­tektúr sem sam­einar sveita­stíl og Mið­jarð­ar­hafs­á­hrif með glæsi­leika og ró.

Mið­jarð­ar­haf­s­lofts­lagið ... þar sem sólin skín að með­al­tali um 300 daga árlega. Þegar sum­arið er fram undan getur mann ekki annað en dreymt um Suður-Frakk­land, þar sem eru sól­ríkar strendur, krútt­leg kaffi­hús og veit­inga­staðir, flóa­mark­aðir og fal­legar bygg­ingar. Þetta svæði er eft­ir­sóttur staður að heim­sækja vegna fjöl­breyti­leika síns, lavander-akra, höf­uð­borgar ilm­vatns­iðn­að­ar­ins, vín­ekra og göngu­ferða.

Svæðið býður upp á fjöl­breytt lands­lag þar sem Mið­jarð­ar­hafs­ströndin mætir gróð­ur­sælum sveitasjarma, stór­kost­legum og fal­legum fjöllum, þar sem útsýnið nær alla leið til Alpanna.

Þorpin í klett­unum og hæð­unum mynda skemmti­legan rytma og efni­við­ur­inn í hús­unum bland­ast fal­lega við gróð­ur­inn og háu trén allt um kring. Svæðið býður auð­vitað upp á fjöl­breytt úrval eigna, allt frá sögu­frægum stein­bæjum til glæsi­legra villa. Bygg­ing­ar­listin í Suður-Frakk­landi er fjöl­breytt og mót­ast mikið af Mið­jarð­ar­haf­s­lofts­lag­inu, fal­legu og lit­ríku lands­lagi með­fram Mið­jarð­ar­hafs­strönd­inni, þar sem er að finna líka fornar róm­verskar rústir.

Ef við tölum um inn­an­húss­stíl­inn á heim­ilum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár