Bragðið er náttúrlega alveg sérstakt

Úlfar Finn­björns­son mat­reiðslu­meist­ari grillar allan árs­ins hring og er að ýmsu að huga áður, á meðan og eftir að grillað er. Þá gefur hann upp­skriftir að for­rétti, aðal­rétti og eft­ir­rétti og er kjúkling­ur­inn í aðal­hlut­verki hvað aðal­rétt­inn varðar.

Bragðið er náttúrlega alveg sérstakt
Gefur ráð varð­andi grillið Úlfar talar um að ekki eigi að snúa fisk­inum eða kjöt­inu of snemma á grill­inu. Mynd: Golli

Þegar kaupa á grill er gott að skoða úrvalið vel og velja vandað grill. Úlfar Finn­björns­son mat­reiðslu­meist­ari segir að margir kaupi allt of stór grill. „Auðvitað er voða gaman að eiga stóran bíl og stórt grill en maður þarf ekk­ert alltaf að nota þetta. Það þarf ekki þessi stóru grill ef það eru tveir til fjórir í fjöl­skyldu. Þá ætti frekar að kaupa minna grill og kaupa alvöru grill.“

Hrein­læti skiptir miklu máli og þarf alltaf að þrífa grillið vel áður en grillað er. Úlfar bendir á að þegar búið er að grilla ætti ekki að slökkva strax á gas­grilli og að betra sé að þrífa gas­grill á meðan það er heitt. Reglu­lega ætti svo að fjar­lægja fitu sem lekur niður af matnum. „Ef fitan situr undir tein­unum getur einn dag­inn kviknað í grill­inu og það stæði í ljósum logum. Og það væri ekki gott.“

Ekki snúa of …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár