„Ég fer út í safnkassann til þess að fá jarðtengingu“

Und­ir­staðan í góðum görðum er góð gróð­ur­mold. Til þess að fá góðan vöxt í jarð­veg­inn er góð molta gulls ígildi. Molta getur verið af ýmsu tagi, en hún er í grunn­inn safn af líf­rænum úrgangi sem verður síðar að mold. Við getum öll jarð­gert líf­rænan úrgang, hvort sem við eigum stóran garð eða bara skot í eld­hús­inu fyrir bokashi tunnur. Í dag er einnig hægt að sækja moltu á ýmsum grennd­ar­stöðvum.

„Ég fer út í safnkassann til þess að fá jarðtengingu“

Helga Ögmund­ar­dóttir er garð­yrkju­fræð­ingur og mann­fræð­ingur og hefur á síð­ustu árum tvinnað þessum fræða­sviðum saman með því að kenna í umhverfis- og auð­lind­ar­fræði við Háskóla Íslands og með því að taka þátt í verk­efn­inu Symbiosis, eða Samlífi. Það er þver­fag­legt rann­sókn­ar­verk­efni innan háskól­ans í sam­starfi við Matís. Í verk­efn­inu er helsta umfjöll­un­ar­efni Helgu sam­lífi manna og örvera í jarð­gerð: „Þetta er bæði mjög per­sónu­legt og nátt­úru­lega vís­inda­legt. Þetta er fræði­legt við­fangs­efni og sam­einar svo margt í tengslum við fólk, þetta efn­is­lega, tengsl við aðrar líf­verur og lofts­lags­málin. Svona deigla þar sem ein­hvern veg­inn allt mæt­ist í mold­inni. Við nátt­úr­lega komum af mold og svo verðum við mold. Lífið gengur út á þetta.“ Helga er alin upp við það að safna líf­rænum úrgangi í holu, en hún segir þó að það hafi verið óvana­legt að gera það í þétt­býli þegar hún ólst upp. Hún fagnar því að þetta sé orðið eðli­legra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár