5 ráð fyrir umhirðu garðplanta

S. Embla Heið­mars­dóttir er garð­yrkju­fræð­ingur með BS-gráðu í umhverf­is­skipu­lagi. Hún hefur starfað í garð­yrkju í ára­tug með áherslu á fjöl­ær­inga. Meðal verk­efna hefur hún hannað beð og plantað niður fjöl­ær­ingum fyrir bæj­ar­fé­lög og í einka­görðum.

5 ráð fyrir umhirðu garðplanta
Garð­yrkju­fræð­ingur S. Embla Heið­mars­dóttir deilir fimm ráðum um umhirðu garð­plantna. Mynd: S. Embla Heiðmarsdóttir

Arfahreinsun

Arfa­hreinsun hefur almennt verið talin leið­in­legt verk en þarft samt sem áður. Ég mæli með að kom­ast yfir allan arfa bæði fyrri part sum­ars og að hausti. Ef þú gefur þér korter á dag til að reyta kemstu fljót­lega yfir öll beðin. Sumir garðar geyma kröfu­hörð arfa­beð sem gott er að hreinsa í nokkrum hollum, þ.e. taka part núna og svo bæta við parti í næstu hreinsun.

Garðsláttur

Fyrir garð­slátt er gott að raka lóð­ina og safna lauf­blöðum saman. Laufblöð eru góð nær­ing og yfir­breiðsla undir stór­vaxna runna. Á meðan þú slærð garð­inn er gott að velta fyrir sér hvernig má gera lóð­ina enn hent­ugri fyrir garð­slátt. Að bæta við beði undir trjám eða gera horn á beði að boga getur ein­faldað slátt tals­vert.

Flokka áburð

Gróflega er hægt að flokka áburð í tvennt. Í fyrsta lagi þann sem þú setur undir plöntu við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár