Ánægður garðeigandi einkennir góðan garð

Björn Jóhanns­son er lands­lags­arki­tekt og eig­andi Urban Beat. Hann segir heilsu­tengd svæði, úti­eld­hús og umhverf­is­væn sjón­ar­mið ráð­andi í garð­hönnun í dag.

Ánægður garðeigandi einkennir góðan garð
Garður Hjá Urban Beat er þrí­vídd­ar­tækni notuð við garð­hönnun. Hún gerir við­skipta­vinum kleift að skilja teikn­ing­arnar betur og hanna sinn drauma­garð. Mynd: Björn Jóhannsson

Björn Jóhanns­son er lærður lands­lags­arki­tekt frá Bret­landi og eig­andi Urban Beat, fyr­ir­tækis sem sér­hæfir sig í hönnun. Samkvæmt honum eru heilsu­tengd svæði, mat­ar­gerð utandyra og umhverf­is­væn sjón­ar­mið áber­andi í garð­hönnun. Það er einnig að verða vin­sælt á nýjan leik að vera með gras­flöt í garð­inum. „Það þarf ekki allt að vera í pöllum og stéttum. Það má skipu­leggja gras­flöt­ina þannig að það sé búið til gott umhverfi á og í kringum gras­flöt,“ segir Björn.

Sýndarveruleiki í garðhönnun

Hjá Urban Beat er sýnd­ar­veru­leiki not­aður við garð­hönnun. Ferlið virkar þannig að Björn hittir garð­eig­endur, fær upp­lýs­ingar um óskir þeirra og tekur myndir af svæð­inu. „Ég er með öpp þar sem ég 3D skanna lóð­ina og fæ myndir þar sem ég get séð hvernig sól­ar­gangur er,“ útskýrir Björn. Þessi tækni gerir honum kleift að hanna garð­ana með góðri rým­isnýt­ingu.

Lands­lags­arki­tektBjörn Jóhanns­son er lands­lags­arki­tekt. Hann segir ánægðan garð­eig­anda ein­kenna góðan …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár