Brúðarvöndurinn slær tóninn fyrir brúðkaupið

Brúð­ar­vönd­ur­inn skipar stóran sess í mörgum brúð­kaupum. Oft er eins og vönd­ur­inn sé lista­verk í höndum brúð­ar­innar. Misjafnt er hvað er í tísku hverju sinni en sumar kjósa að fara eigin leiðir og tína jafn­vel íslensk blóm í vönd­inn.

Brúðarvöndurinn slær tóninn fyrir brúðkaupið
Brúð­ar­vöndur Brúð­ar­vöndur frá Blóma­vali.

Brúð­ar­vönd­ur­inn slær gjarnan tón­inn fyrir brúð­kaupið. Barmblóm brúð­gumans er almennt aðal­blómið í brúð­ar­vend­inum. Svara­menn, brúð­ar­meyjar og -sveinar fá almennt líka blóm. Rrýmið þar sem brúð­kaups­veislan er haldin er oft skreytt með sömu blómum eða í svip­uðum stíl eða lita­þema.

Sér­fræð­ingar í blóma­skreyt­ingum segja allan gang á því eftir hverju brúðir eru að leita.

„Brúð­ar­vend­irnir eru svo­lítið frjáls­legri og villt­ari heldur en þeir hafa verið en það er samt svo breyti­legt; en ég myndi segja að þeir væru villt­ari og þétt­ari og það er fal­legt að nota þurrkuð strá með en þá verða þeir aðeins nátt­úru­legri,“ segir Gunn­hildur Ragúels Hall­dórs­dóttir, blóma­skreytir hjá Blómabúð Akur­eyrar. „Stíllinn í dag er róm­an­tískur; stór blóm í bland við alls konar minni blóm og grænt með. Rósirnar eru alltaf vin­sælastar; það breyt­ist ekki. Margar vilja fá bóndarósir en þeirra besti tími er frá maí og fram í júlí en svo verða þær dýr­ari; bóndarósin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár