Þar sem náttúran fær að njóta sín

Bragi Þór Jós­efs­son ljós­mynd­ari hefur í áraraðir boðið upp á brúð­kaups­mynda­tökur úti í nátt­úr­unni. Hann leggur áherslu á að brúð­hjón mæti með góða skapið, þetta sé gleði­dagur og það skipti ekki máli hvernig veðrið er, enda hafa margar af hans bestu myndum verið teknar í vondu veðri.

Þar sem náttúran fær að njóta sín

Bragi Þór Jós­efs­son ljós­mynd­ari er reynslu­bolti á sínu sviði en hann hefur starfað við ljós­myndun í ára­tugi. Hann segir að ef mikil skipu­lagn­ing er á bak við fyr­ir­hugað brúð­kaup sé best að til­von­andi brúð­hjón fái fag­að­ila til að hjálpa þeim við að skipu­leggja bæði brúð­kaupið og brúð­kaups­veisl­una. „Fólk sem er að fara að gifta sig þarf að slaka á og njóta. Mér finnst það vera mik­il­vægt.“

Það þarf til dæmis að panta brúð­kaups­mynda­tök­una með góðum fyr­ir­vara og nefnir Bragi Þór að það ætti að gera með alla­vega hálfs árs fyr­ir­vara þótt það sé allur gangur á því. „Ég held að það sé lág­mark. Það er ekki þar með sagt að það sé von­laust að fá tíma með minni fyr­ir­vara, svo sem mán­uði áður, en til að vera viss er betra að fara að huga að þessu í kringum ára­mótin ef brúð­kaupið verður að sumri til.“

Bragi ÞórÞað …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár