Myrta, tákn um ást og fegurð

Myrta hefur löngum verið tákn­mynd feg­urðar, frjó­semi og ástar.

Myrta, tákn um ást og fegurð

Myrtu­planta, eða Myrtus communis og Myrtuntium á lat­nesku, hefur löngum verið tákn­mynd feg­urðar, frjó­semi og ástar, rétt eins og rósin rauða. Orðið vísar til teg­unda plantna af ætt­inni Myrtaceae en myrta ber líka nafnið brúð­ar­lauf.

Myrtan er runni sem er upp­runn­inn í Suður-Evrópu, í lönd­unum við Mið­jarð­ar­hafið, Norður-Afríku og á Vestur-Ind­lands­skaga. Forn-Róm­verjar til­eink­uðu ást­ar­gyðj­unni Venus myrtu­blóm. Í róm­verskum helgi­siðum, meðal ann­ars á Grikk­landi til forna, var myrtu­plantan tákn kær­leika og ódauð­leika og brúð­ar­sveigur flétt­aður úr myrtu­blómum var lagður á höfuð brúð­ar­innar en sá siður barst til Norð­ur­land­anna og jafn­vel til Íslands en þess eru dæmi sam­kvæmt heim­ildum að slíkt hafi verið gert hér.

Yrkisefni skálda og tónskálda

Sterk vísun myrtu­blóma í ást og róm­an­tík hefur verið bæði skáldum og tón­skáldum yrk­is­efni um aldaraðir, má þar nefna Robert Schumann (1810–1856) sem samdi ljóða­flokk­inn Myrten sem brúð­ar­gjöf til eig­in­konu sinnar, Clöru Schumann, en ljóða­flokk­ur­inn er ást­ar­játn­ing hans til hennar. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár