Falleg gjöf sem vefur söguna áfram

Úlfar Linnet, verk­fræð­ingur hjá Lands­virkjun, á stól sem upp­haf­lega kemur úr búi bar­óns­ins á Hvít­ár­völlum en hann fékk stól­inn í útskrift­ar­gjöf. Úlfar segir að stóll­inn sé mikið not­aður og að á heim­ili hans og konu hans séu mublur úr fjöl­skyldum þeirra beggja sem eigi sér sögu. Þau tengi því við þær, sem þau myndu lík­lega ann­ars ekki gera og þyki vænna um hús­gögnin fyrir bragðið.

Falleg gjöf sem vefur söguna áfram

„Saga stóls­ins er þannig að hann kemur inn í mína föð­ur­fjöl­skyldu þegar langafi minn, Kristján Linnet, kaupir hann úr búi franska bar­óns­ins, Charles Gauldrée-Boilleau, sem var vel mennt­aður heims­borg­ari. Hann kom til Íslands árið 1898 með mikil áform. Charles var oft kall­aður bar­ón­inn á Hvít­ár­völlum þar sem hann bjó og var með búskap en seinna bjó hann á Bar­óns­stíg, sem er nefndur eftir honum, en Charles var með með stórt fjós við Bar­óns­stíg og var for­göngu­maður um búskap hér á landi. Faðir Charles var franskur og hafði verið sendi­herra Frakka í Líma í Perú. Charles var mik­ill mála­maður, tal­aði sjö tungu­mál og lærði einnig íslensku eftir að hann kom hingað til lands á afar skömmum tíma. Hann lék á selló og hélt tón­leika í Reykja­vík en end­aði ævina með að stytta sér aldur, slyppur og snauður. Þórarinn Eldjárn skrif­aði um hann bók­ina Baróninn sem kom út árið 2004. Langafi hélt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár