Tveggja sólarhringa ferðalag í giftinguna í aftakaveðri

Sigrún Björns­dóttir, fyrr­ver­andi leik­kona og dag­skrár­gerð­ar­maður, og eig­in­maður hennar, Ragnar Björns­son, dómorganisti, stjórn­andi og síðar tón­list­ar­skóla­stjóri, giftu sig í Dóm­kirkj­unni þar sem Ragnar starf­aði. Það var þó ekki heiglum hent að kom­ast í hnapp­held­una því Sigrún bjó þá enn í for­eldra­húsum á Akureyri og ferðin suður tók hátt í tvo sól­ar­hringa í aftaka­veðri.

Tveggja sólarhringa ferðalag í giftinguna í aftakaveðri

Sigrún Björns­dóttir og eig­in­maður hennar, Ragnar Björns­son, giftu sig í Dóm­kirkj­unni þar sem Ragnar starf­aði. Faðir brúð­ar­innar gaf þau saman og lærifaðir Ragnars, Páll Ísólfs­son dómorganisti, spil­aði á org­elið og var athöfnin mjög fal­leg að sögn Sigrúnar. Veislan var tví­skipt, ann­ars vegar kaffi­sam­sæti og svo kvöld­verður fyrir nán­ustu ætt­ingja og vini.

Sigrún og Ragnar hitt­ust fyrst í Klúbbnum, einum aðal­veit­inga­staðnum í Reykja­vík á sjö­unda og átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. „Það voru fáir í Klúbbnum þetta kvöld en frænka mín og vin­kona, Margrét Sig­valda­dóttir, eða Maggý eins og hún var kölluð, sem varð síðar hót­el­stjóri, meðal ann­ars á Hótel Loft­leiðum, kom með skipi að utan sama morgun og ég tók á móti henni. Hún segir við mig, ekki mikið þreytt eftir ferða­lagið: Þú verður að koma með mér í Klúbbinn í kvöld. Það var þá ein­hver gæi sem hún var spennt fyrir. Það var annar staður með sama nafni en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár