Sigrún Björnsdóttir og eiginmaður hennar, Ragnar Björnsson, giftu sig í Dómkirkjunni þar sem Ragnar starfaði. Faðir brúðarinnar gaf þau saman og lærifaðir Ragnars, Páll Ísólfsson dómorganisti, spilaði á orgelið og var athöfnin mjög falleg að sögn Sigrúnar. Veislan var tvískipt, annars vegar kaffisamsæti og svo kvöldverður fyrir nánustu ættingja og vini.
Sigrún og Ragnar hittust fyrst í Klúbbnum, einum aðalveitingastaðnum í Reykjavík á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. „Það voru fáir í Klúbbnum þetta kvöld en frænka mín og vinkona, Margrét Sigvaldadóttir, eða Maggý eins og hún var kölluð, sem varð síðar hótelstjóri, meðal annars á Hótel Loftleiðum, kom með skipi að utan sama morgun og ég tók á móti henni. Hún segir við mig, ekki mikið þreytt eftir ferðalagið: Þú verður að koma með mér í Klúbbinn í kvöld. Það var þá einhver gæi sem hún var spennt fyrir. Það var annar staður með sama nafni en …












Athugasemdir